þriðjudagur, ágúst 26, 2008

Uppskeruhátíð (Ný dagsetning) - Æfingatafla vetursins tilbúin

Uppskeruhátíðin verður SUNNUDAGINN 31. ágúst kl. 13:00 (ATH! Breyttur tími) í Íþróttahúsinu á Ásvöllum. Sem fyrr þá er algjör skyldumæting hjá öllum sem hafa verið að æfa hjá Haukum í vetur og sumar og foreldrar hvattir til að koma með börnunum sínum.

Allir iðkendur (foreldrarnir) eiga að koma með eina köku eða sambærilegt bakkelsi kl. 12:45 í Veislusalinn þar sem kaffið fer fram eftir hátíðina.

Æfingatafla vetursins, sem tekur gildi mánudaginn 1. september, liggur nú fyrir og hægt er að skoða æfingar allra flokka upp í 3. flokk á heimasíðu Hauka: www.haukar.is

Engin ummæli: