föstudagur, febrúar 26, 2010

Æfing fellur niður á sunnudag.

Á sunnudag fellur niður æfing í Risanum. Næsta æfing er á miðvikudag kl 16:30

laugardagur, febrúar 20, 2010

Foreldrafundur

Á morgunn, fimmtudag, 25.febrúar verður haldinn foreldrafundur fyrir ykkur foreldra drengja í 7.fl karla í fótbolta. Fundurinn hefst kl 18:15 á efri hæðinni á Ásvöllum.
Farið verður yfir mót sumarsins, nýjan auka æfingartíma og foreldrastjórn kynnir sig.
Mikilvægt er að a.m.k eitt foreldri frá hverjum dreng komi á fundinn.

kv Foreldrastjórn og þjálfarar

laugardagur, febrúar 06, 2010

Æfing og upplýsingar um niðurgreiðslur á æfingargreiðslum

Á morgunn ( sunnudag 7.feb ) er æfing kl 10:00 í Risanum.


Minnt er á að 1. til 15.febrúar febrúar er opið á ný fyrir umsóknir um íþrótta- og tómstundastyrki.

Frestur til að staðfesta þátttöku vegna vorannar 2010 (jan. – maí) er til og með 15. febrúar. Gáttin er aðeins opin einu sinni á þessu tímabili.

Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.

Nánari upplýsingar um íþrótta- og tómstundastyrkina eru í Íbúagáttinni, www.hafnarfjordur.is , en einnig hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar í síma 585-5500 og hjá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar í síma 555-2300.

Einnig er hægt að hringja í íþróttastjóra félagsins og fá nánari upplýsingar s: 525-8702.