Því miður fellur Álftanesmótið niður í sinni upprunalegu mynd þetta sumarið. Það er ekkert sem við þjálfararnir getum í því gert en þessar upplýsingar fengum við seint í gær frá mótshöldurum á Álftanesi. Mikið af öðrum liðum voru að draga sig úr keppni og voru jafnvel hætt með æfingar fyrir sína flokka þetta sumarið.
EN í staðinn mætum við samt út á Álftanes á laugardag kl 11:00 þar sem strákarnir spila nokkra æfingaleiki við Álftanes og ÍBV. Að því loknu fá strákarnir frítt í sund og ís eftir leikina. Það kostar ekkert að taka þátt.
Gert er ráð fyrir að leikirnir hefjist kl 11:30 og þetta standi yfir í ca 2 klst.
ALLIR STRÁKARNIR EIGA AÐ MÆTA Á SAMA TÍMA ( KL 11:00) OG VERÐUR SKIPT Í LIÐ Á STAÐNUM.
Æfingatímar haldast óbreyttir út næstu viku en vetrartímar og flokkaskipti byrja eftir aðra helgi. Nánari upplýsingar koma inn í næstu viku.
TIL GAMANS MÁ GETA AÐ MEISTARAFLOKKUR KARLA ER AÐ KEPPA GEGN KEFLAVÍK SEINNA UM DAGINN Á VODAFONEVELLINUM KL 16:00 OG ER TILVALIÐ AÐ KÍKJA Á VÖLLINN.
fimmtudagur, ágúst 26, 2010
sunnudagur, ágúst 15, 2010
Álftanesmótið
Farið verður á Álftanesmótið með strákanna laugardaginn 28.ágúst. Allir strákar sem hafa verið að æfa í vetur og sumar geta tekið þátt.
Það þarf að skrá ykkar strák á póstfangið :hilmar@raggoz.com og best er að gera það sem fyrst.
kv Þjálfarar
Það þarf að skrá ykkar strák á póstfangið :hilmar@raggoz.com og best er að gera það sem fyrst.
kv Þjálfarar
mánudagur, ágúst 02, 2010
Æfingar eftir Verslunarmannahelgi
Nú á miðvikudag 4.ágúst hefjast æfingar aftur eftir sumarfrí og verður æfingin kl 16:30 á Ásvöllum.
Stefnan er að fara með strákana á mót í lok ágúst á Álftanesi.
kv Þjálfarar
Stefnan er að fara með strákana á mót í lok ágúst á Álftanesi.
kv Þjálfarar
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)