laugardagur, júlí 04, 2009

Mót og fleira

Sæl öll Árni þjálfari hér.

Sæll öll Árni þjálfari strákanna hér. Nú framundan er síðasta æfingavikan fyrir sumarfrí og byrjum við svo aftur þriðjudag eftir Verslunarmannahelgi eða 4.ágúst.


Það verður 4 liða mót hjá strákunum laugardaginn 18.júlí á Ásvöllum og er byrjað að spila kl 12:00 á grasinu okkar. Ég vil byðja ykkur kæru foreldrar að skrá ykkar strák til leiks ef viljinn er fyrir því að vera með á þetta póstfang : arnihh@gmail.com. Ef fólk er í sumarfríi þá er það ekkert mál því við förum líka með strákana á mót í ágúst. Stefnan er að verða með 4-5 lið 18.júlí. Liðin sem taka þátt eru Keflavík, Njarðvík,Grindavík og Haukar.

Svo minni ég á hvetja strákana til að vera duglega að taka aukaæfingar og æfa sig sjálfir . Eftir hverja aukaæfingu er hægt að kvitta í æfingadagbókina sem flestir ættu að vera búnir að fá.

Engin ummæli: