fimmtudagur, október 01, 2009

Risinn á sunnudag og texti vegna æfingagjalda

Á sunnudag 4.okt byrja æfingar í Risanum( FH svæðið) og er æfingin hjá 7.fl karla kl 10:00 - 11:00.

Hér fyrir neðan er texti sem foreldrar eiga að lesa vegna æfingagjalda:


Frá árinu 2002 hefur Hafnarfjarðarbær greitt niður þátttökugjöld fyrir börn og unglinga í æskulýðs- og íþróttafélögum í Hafnarfirði. Fjölbreytni í íþrótta- og tómstundastarfi í Hafnarfirði er mikil og allir ættu að geta fundið áhugamálum sínum góðan farveg.



Sú breyting hefur orðið á fyrirkomulagi niðurgreiðslunnar að staðfesta þarf þátttöku viðkomandi barns í Íbúagáttinni á hafnarfjordur.is.

Frestur til að staðfesta þátttöku vegna haustannar 2009 er til og með 15. október.


Með staðfestingu í gegnum Íbúagáttina samþykkir forráðamaður barns að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna þátttöku barnsins í námskeiði á vegum félagsins.


Nánari upplýsingar um íþrótta- og tómstundastyrkina eru í Íbúagáttinni en einnig hjá Þjónustuveri Hafnarfjarðarbæjar í síma 585 5500 og hjá Íþróttabandalagi Hafnarfjarðar í síma 555 2300.


Bæjarbúar eru hvattir til að kynna sér málið.





ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTYRKIR Í ÍBÚAGÁTTINNI
Ákveðið hefur verið að niðurgreiðsla íþrótta- og tómstundastyrkja fari nú í gegnum íbúagáttina hér á vef Hafnarfjarðarbæjar og er það þáttur í að auka rafræna þjónustu við bæjarbúa. Í sumar fór skráning á leikjanámskeið bæjarins fram með þessum hætti og var mikil ánægja hjá notendum með þá framkvæmd.

MARKMIÐIÐ

Markmiðið með niðurgreiðslustyrknum er að gera börnum kleift að taka þátt í íþrótta- og tómstundastarfi óháð efnahag fjölskyldna og að efla íþrótta- og annað forvarnastarf í Hafnarfirði.



HVERJIR EIGA RÉTT Á ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTYRKJUM ?

Hafnarfjarðarbær veitir öllum börnum og unglingum að 16 ára aldri með lögheimili í Hafnarfirði niðurgreiðslu vegna íþrótta- og tómstundastarfs.



Niðurgreiðsla fyrir íþrótt/tómstund er að hámarki ári eins og hér segir:


Fyrir 6 ára og yngri kr. 12.000 ( 1000 kr. á mánuði)

Fyrir 7-12 ára kr. 24.000 ( 2000 kr. á mánuði )

Fyrir 13 -16 ára kr. 36.000 ( 3000 kr. á mánuði)

Staðfesta þarf niðurgreiðslu haustannar 2009 fyrir 15. október. Viðkomandi félag fær staðfestingu á niðurgreiðslu í tölvupósti. Með staðfestingu á niðurgreiðslunni í gegnum Íbúagátt Hafnarfjarðarbæjar hefur forráðamaður barns samþykkt að Hafnarfjarðarbær greiði viðkomandi félagi niðurgreiðsluna vegna námskeiðs barnsins hjá félaginu.





HVERNIG SÆKI ÉG UM NIÐURGREIÐSLUNA ?
Valinn er hnappurinn NIÐURGREIÐSLUR VEGNA ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDASTARFS og þá birtast nöfn þeirra barna sem eiga rétt á niðurgreiðslunni. Þegar búið er að velja barn, birtist umsóknareyðublaðið þar sem viðkomandi félag og deild er valið. Í lokin þarf að staðfesta umsóknina. Félagið fær staðfestingu á að viðkomandi forráðamaður hafi staðfest niðurgreiðsluna. Staðfesta þarf niðurgreiðslur fyrir hverja önn.


AÐSTOÐ
Þurfir þú á aðstoð að halda við innskráningu eða notkun á íbúagáttinni þá endilega hafðu samband við þjónustuver bæjarins 585 5500 eða notaðu netspjallið á www.hafnarfjordur.is

Hér er hægt að skoða samning Hafnarfjarðarbæjar við íBH.

Hér er hægt að skoða hvaða félög hafa gert samning.


Einnig er hægt að hafa samband við íþróttastjóra í s: 525-8700 eða s: 861-3614.

Engin ummæli: