föstudagur, febrúar 03, 2012

Mót hjá Breiðablik í Fífunni sunnudaginn 12.febrúar

Mótið verður spilað frá klukkan 08.00-13.00, þó tekur það ekki nema rúmlega klukkutíma fyrir hvert lið að spila þeirra leiki. Þátttökugjald er 1000kr fyrir hvern strák og innifalið í gjaldinu eru leikirnir og svali eða eitthvað þess háttar.
Skráið strákana ykkar sem fyrst með því að senda mail á hilmar@raggoz.com með nafni stráksins, við reynum svo að birta upplýsingar um það hvenær hver og einn strákur á að mæta á bloggsíðu flokksins með góðum fyrirvara, en það fer allt eftir því hversu fljótt þið skráið stákana á mótið.

P.s. þið megið svo láta mig vita með pósti á sama mail ef þið eruð ekki ennþá komin á póstlista flokksins.

kveðja
þjálfarar

Engin ummæli: