Lesið einnig færsluna fyrir neðan þessa færslu!! Báðar gerðar miðvikudaginn 9.maí.
Haukar
taka á móti Tindastóli á laugardag kl. 14.00.
Ókeypis á leikinn.
Hvetjum foreldra Hauka-barna
sérstaklega til að mæta.
Fyrsti leikur Hauka í 1.
deildinni í sumar verður gegn Tindastóli á Ásvöllum á laugardaginn kl. 14:00 en
ókeypis verður á Schenker-völlinn í boði Rio Tinto Alcan. ,,Við hvetjum foreldra Hauka-barna sérstaklega
velkomin á völlinn,“ segir Guðbjörg Norðfjörð, íþróttastjóri Hauka en einnig
verður ókeypis í aðstöðu Hauka í horni. Upphitun
á Ásvöllum hefst kl. 12.00 og hægt verður að kaupa hamborgara og drykki á vægu
verði.
Hilmar Trausti Arnarson,
fyrirliði liðsins, segir að sumarið leggist mjög vel í hann enda hafi hópurinn
æft mjög vel í vetur. ,,Allir leikmenn
eru heilir og í topp formi, fyrir utan Gumma Sævars sem meiddist á æfingu eftir
að við komum heim frá Spáni en hann vonandi allur að koma til. Annars höfum við verið frekar heppnir með
meiðsli í allan vetur enda búnir að losa okkur við mestu væludúkkurnar og
einungis harðjaxlar í hópnum í dag. Við erum með gott lið og ef við spilum
okkar bolta þá hef ég engar áhyggjur af gengi liðsins. Það eru mörg góð lið í
þessari deild og þetta verður stríð í hverjum einasta leik.“
Hann segir að leikurinn gegn
Tindastóli verði erfiður eins og allir leikir í þessari deild. ,,Það er klárt að það verður ekkert vanmat of
okkar hálfu, þeir eru að koma upp um deild, hafa engu að tapa og koma eflaust
klárir til leiks. Það er mikilvægt að byrja mótið vel og gefa strax til kynna
að við ætlum okkur stór hluti í sumar.“
Spurður um stemmninguna í hópnum þá segir Hilmar að
það hafi aldrei vantað upp á hana í Haukum.
,,Svo vil ég hvetja okkar stuðningsmenn til að fjölmenna á okkar leiki í
sumar þar sem það gefur okkur leikmönnunum aukinn kraft að sjá stúkuna fulla af
Haukafólki. Ég vil því biðja alla alvöru
Haukamenn að fjölmenna á leikina í sumar og gera Schenker-völlinn að óvinnandi
vígi. Við leikmenn komum til með að gera okkar besta til þess að skemmta ykkur
í sumar og sendum ykkur heim með bros á vör.“
Engin ummæli:
Skrifa ummæli