þriðjudagur, ágúst 28, 2007

Uppskeruhátíð Knattspyrnudeildarinnar

Uppskeruhátíðin verður í íþróttasalnum á Ásvöllum sunnudaginn 2. september og hefst klukkan 14:00. Að verðlaunaafhendingu lokinni verður kökuveisla í veislusalnum. Allir foreldrar eru vinsamlegast beðnir um að koma með eina köku eða sambærilegt meðlæti og mæta með það í veislusalinn í síðasta lagi 13:45. Vetrarstarfsemi félagasins verður einnig kynnt á hátíðinni.

Skyldumæting!

föstudagur, ágúst 24, 2007

Lokhóf 7.flokks á þriðjudaginn 28. ágúst

Þriðjudaginn 28. ágúst ætlar foreldrastjórnin að vera með lokahóf bara fyrir 7.flokk karla á auglýstum æfingatíma frá kl. 17-18 á Ásvöllum. Við ætlum að grilla pulsur fyrir alla strákana, foreldra og systkini í portinu í Íþróttamiðstöðinni (við afgreiðsluborðið) auk þess sem karatesalurinn verður opinn fyrir strákana þar sem þeir munu geta djöflast aðeins í skotbolta og öðrum leikjum.

Allir sem koma nálægt flokknum eru hvattir til að mæta.

sunnudagur, ágúst 19, 2007

Framundan hjá 7.flokki

Æfingaprógrammið hjá 7. flokki karla lítur svona út:

  • Mánudagur 20. ágúst - 10:45-12:00 úti á Ásvöllum
  • Þriðjudagur 21. ágúst - 10:45-12:00 úti á Ásvöllum (síðasta morgunæfingin)
  • Föstudagur 24. ágúst - 17:00-18:00 úti á Ásvöllum
  • Þriðjudagur 28. ágúst - 17:00-18:00 inni á Ásvöllum
  • Föstudagur 31. ágúst - 17:00-18:00 úti á Ásvöllum
  • Sunnudagur 2. september - UPPSKERUHÁTÍÐ Á ÁSVÖLLUM / Kynning á vetrarstarfinu.
  • Mánudagur 3. september - Hausttaflan tekur gildi - eldra árið gengur upp í 6. flokk.

sunnudagur, ágúst 12, 2007

Orðsending frá Meistaraflokksráði karla

Meistaraflokksráð karla bað mig um að koma eftirfarandi orðsendingu á framfæri:

Haukarar, mætum á völlinn og styðjum okkar menn
Bikarleikur - 8-liða úrslit: Haukar - Fjölnir. Mánudaginn 13. ágúst kl. 18:30 á Fjölnisvelli í Grafarvogi. Frítt fyrir 16 ára og yngri. Hittumst klukkan 16:30 á Ásvöllum. Boðið verður upp á pylsur-kók-andlitsmálningu. Trommusveit Hauka kemur stuði í mannskapinn. Fríar strætóferðir á leikinn og heim að leik loknum. Stuð og stemming. Mætum öll í Haukarauðu og hvetum okkar menn. ÁFRAM HAUKAR

Frí á mánudaginn

Það er frí á mánudagsæfingunni 13. ágúst enda flestir örugglega saddir af fótbolta eftir helgina. Næsta æfing er á þriðjudaginn.

föstudagur, ágúst 10, 2007

Tilkynning til foreldra

Mér þykir það mjög leitt að þurfa tilkynna það að ég mun ekki verða viðstaddur á Króksmótinu á Sauðárkróki. Eins og einhverjir vita að þá er ég í fullu starfi hjá Knattspyrnudeild Hauka og sinni ýmsum öðrum verkefnum en þjálfuninni. Stundum geta orðið árekstrar þar á milli og í þessu tilviki er það einmitt raunin. Ég er hálf miður mín yfir þessu og finnst eins og ég sé að bregðast ykkur foreldrum strákanna á vissan hátt. Hendur mínar voru einfaldlega bundnar og ég átti ekki annarra kosta völ en að verða eftir í bænum.

En ekkert er svo slæmt að ekki fylgi því eitthvað gott! Ólafur Örn Oddsson, forveri minn sem þjálfari 7. flokks lengur en elstu menn muna, mun leysa mig af á Króknum og hefði ekki verið hægt að finna betri afleysingarmann en hann. Ég mun því áhyggjulaus fylgjast með fréttum frá mótinu og óska öllum þar góðs gengis.

fimmtudagur, ágúst 02, 2007

Króksmótið - upplýsingablað

Ferðalagið
Farið verður á einkabílum og er ætlast til að foreldrar eða forráðamenn strákanna sjái nánast alfarið um strákinn milli þess sem spilað er (meira um þetta neðar). Það er mæting á Sauðárkrók í síðasta lagi föstudagskvöldið 10. ágúst en þá um kvöldið kl. 22:00 er fararstjórarfundur og að honum loknum ættu öll leikjaplön helgarinnar að liggja endanlega fyrir.

Dagskrá mótsins
Föstudagur 10. ágúst
Mæting á Sauðárkrók.
Afhending gagna og mótttaka liða í Árskóla við Freyjugötu og Skagfirðingabraut (!)
Kl. 22.00 Fararstjórafundur í Vallarhúsi.

Laugardagur 11. ágúst
Kl. 7:30-9:00 - Morgunmatur í íþróttahúsi.
Kl. 9:00 - Setningarathöfn. Allir þátttakendur mæti á knattspyrnuvöllinn næst íþróttahúsi, þaðan mun skrúðgangan fara af stað inn á íþróttasvæðið, í framhaldi verður stutt setningarathöfn.
Kl. 10:00 - Fyrstu leikirnir hefjast.
Kl. 12:00 - Grillað í góðum gír.
Kl. 17:00 - 18:00 - Leikjum laugardags lokið. Þau lið sem klára sína leiki fyrst fara fyrst í kvöldmat, þannig að það er um að gera að drífa sig í sund.
Kl. 18:30 - Kvöldverður í íþróttahúsi, í matinn verður íslenskt fjallalamb.
Kl. 20:30 - 21.30 - Kvöldvaka í íþróttahúsi.
Kl. 22.00 - Þjálfara- og fararstjórafundur í vallarhúsi, kökur og fínerí.

Sunnudagur 12. ágúst
Kl. 7:30-9:00 - Morgunmatur í íþróttahúsi.
Kl. 9:00 - Leikir hefjast á ný.
Kl. 11:30 - 13:30 - Hádegisverður í íþróttahúsi, í matinn verða kjúklingabollur og meðlæti.
Kl. 16:00 - Leikjum dagsins lýkur. Verðlaunaafhending og mótinu slitið
.

Mótsgjald
Það kostar 7.500 krónur að fara á mótið. Af þeirri upphæð er sjálft mótsgjaldið 6.500 krónur og innifalið í þeirri upphæð er:
• kvöldkaffi á föstudagskvöldi
• morgunverður, grillveisla og kvöldverður á laugardegi
• kvöldvaka á laugardagskvöldi
• morgun- og hádegisverður á sunnudegi
• frítt í sund fyrir keppendur, fararstjóra og þjálfara á laugardeginum
• litmynd af hverju liði fyrir hvern leikmann þess
• verðlaunapeningur fyrir hvern keppanda
• þrjú efstu liðin í hverjum flokki fá glæsilega verðlaunagripi

Hinar 1.000 krónurnar eru síðan til að kosta staðfestingargjaldið og ferðakostnað þjálfara. Ef einhver afgangur verður þá endurgreiðist hann að sjálfsögðu eftir mótið.

Greiðsla á mótsgjaldinu
Margir hafa nú þegar greitt 2.000 króna staðfestingargjald fyrir mótið. Eftirstöðvarnar skal leggja inn á reikningsnúmer: 0140-05-74294, kennitala 700387-2839 með upphafi kennitölu stráksins sem tilvísun.
Einhverjir hafa verið duglegir að safna sér fyrir mótinu í gegnum fjáraflanirnar sem hafa verið í gangi í vetur. Þær upphæðir er að finna á sportreikning strákanna hjá Landsbankanum. Foreldrar þurfa að hafa samband við Landsbankann og fá millifært af þessum reikningum inn á reikninginn hérna fyrir ofan, í síðasta lagi fimmtudaginn fyrir mótið. Linda í foreldrastjórninni getur örugglega svarað spurningum um innistæður strákanna á þessum reikningum. Hún er í síma 891 6454. Linda er einnig með töskur frá Landsbankanum fyrir nýja iðkendur sem hafa stofnað svona sportreikning.

Gisting
Ólíkt Skagamótinu þá var það þannig í fyrra á Króksmótinu að langflestir foreldrar gistu á tjaldsvæðinu, voru meira prívat með sínum strák og mættu bara með strákinn í leikina og aðra atburði. Þetta skilst mér að hafi mælst vel fyrir. Félögunum býðst reyndar gisting í skólastofum í Árskóla og Fjölbrautarskólanum á Sauðárkróki ef einhver vill frekar nýta sér hana. Þjálfararnir munu gista þar. Á tjaldsvæðinu verður búið að eyrnamerkja Haukum ríflegt svæði fyrir allan hópinn og skemmtilegast væri ef Haukaforeldrar myndu hreiðra um sig í návist við hvert annað. Tjaldstæðin, sem eru ókeypis, eru á tveimur stöðum í bænum, annars vegar við hliðina á sundlauginni - frekar lítið svæði - og hins vegar uppi á Nöfum - stórt svæði. Til að fara upp á Nafir er ekið upp hjá kirkjunni, upp Kirkjuklauf og svo suður Nafirnar. Hægt er að nálgast upplýsingar um gistiheimili hjá Upplýsingamiðstöð ferðamála í Varmahlíð í síma 455-6161 og á heimasíðunni www.visitskagafjordur.is

Sundferðir
Sundlaugin á Sauðárkróki getur ekki tekið við öllum þátttakendum í einu og því er um að gera að drífa sig sem fyrst í sund eftir að leikjum lýkur á laugardeginum, því liðin eru ekki öll búin á sama tíma. Ef of margir koma í einu mun starfsfólk sundlaugarinnar hleypa inn í "hollum".

Matarmiðar
Foreldrar geta keypt matarmiða í Árskóla á föstudagskvöld og eins á matartímum í íþróttahúsi, fyrir eina eða fleiri máltíðir. Hefðbundinn morgunmatur er báða dagana, í hádeginu á laugardaginn eru grillaðar pylsur, í kvöldmatinn á laugardaginn er ekta skagfirskt lambalæri með kartöflurm, sósu og sallati og í hádeginu á sunnudag eru kjúklingabollur með pasta og sallati. Morgunmatur kostar 500 kr., kvöldmatur laugardag kostar 1200 kr. og hádegismatur sunnudag kostar 1000 kr.

Þjálfara og liðstjórar
Kristján Ómar og Hilmar Rafn verða þjálfararnir á mótinu. Þeim til aðstoðar hafa verið fengnir þrautreyndir liðstjórar, þeir Sigmar (pabbi Andra Scheving), Þorkell (pabbi Orra) og Lars (pabbi Bjarts), sem munu hjálpa til við að stýra liðunum og halda utan um hópinn þegar keppnin er í gangi.

Útbúnaður
Haukar útvega og koma með á staðinn keppnistreyju Hauka sem er langermabolur, en foreldrar sjá um annan útbúnað. Flestar eru búnar að festa kaup á utanyfirgalla sem fæst í Fjölsport í Hafnarfirði og margir fengu stórfína bláa jakka á Króksmótinu. Ef einhver er að spá í fótboltaskóm þá mæli ég frekar með takkaskónum en gervigrasskónum.
Hér er góður listi til að vinna út frá þegar verið að pakka niður:

Dýna / Vindsæng

Svefnpoki/sæng + kodda

Tannbursti + tannkrem

Félagsgalli

Keppnisskór (úti)

Legghlífar

Stuttbuxur og sokkar

Auka sokka/stuttbuxur

Regn og vindgalli

Auka skó

Afþreyingarefni s.s.tölvuspil,cd-spilari,spil,bók

Hlý peysa

Úlpa - húfa – vettlingar

Sundföt

Stuttermaboli

Handklæði

Nærföt

Náttföt

Vatnsbrúsa

Klæðnaður fyrir 3 daga

Góða skapið og góðan keppnisanda

Best er að allur búnaður, hver einstök flík, sé mjög vel merkt með nafni, síma og félagi – því eins og flestir vita þá týnast svona hlutir ótrúlega auðveldlega.

Frekari upplýsingar
Ég mæli með að foreldrar fylgist með hér á heimasíðu flokksins og á heimasíða Króksmótsins: http://www.skagafjordur.com/kroksmot og þar verður á einhverjum tímapunkti fyrir mótið að finna leikjaplanið og aðrar hagnýtar upplýsingar.

Símanúmer
Kristján Ómar – 695 5415
Hilmar Rafn – 847 4732
Þorkell – 856 7472
Sigmar – 846 8051
Lars – 661 7233